18.12.2018 | 14:34
Nr 20. Árin 2005
Við hættum á frýstingunni 2005 og förum aftur á ferskfisk veiðar allt er tekið af milli dekkinu flökkunar vélin , roðrífan hausarar og snyrtilínan og pökkunarlínan og plötufrystarnir 3 , og í staðin er komið fyrir aðgerðar búnaði sem smíðaður var í Þór, einnig var tekinn allur frystibúnaður sem var í vélarúmi í , tvær frysti prestur Sabro og allur búnaður sem þeim fylgdi.
Þarna var Svenni hættur í útgerðinni og kom með okkur aftur sem vélstjóri.Þarna er hann búinn að eiga einn lítin auga stein í viðbót Heimir Freyr. Hann er fæddur 17 apríl 2004 , við erum á fiskitrolli þangað til 2008-9 þegar Sigurjón og fjölskylda ákveða að fara út í að láta smíða nýja Þórunni Sveinsdóttir í Danmörku í Skagen og þá kaupir Ísfélagið gömlu Þórunni og skýra hana Suðurey. Þeir fengu Karstensen skipasmíðastöðina í skagen til þess að smíða, þeir létu smíða skrokkinn í Póllandi við vorum með blogg síðu meðan á smíðinni stóð (os-ehf-illugagata44.blogg.is) .
Bækur | Breytt 20.12.2018 kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)